Besta plata allra tíma: Er eitthvað að ?

Tók þátt í kosningu á bestu íslensku plötu allra tíma hér á mbl.is.

Valdi eftirfarandi:

Bubbi - Ísbjarnarblús

Grýlurnar - Mávastellið

Megas & Spilverkið - Á bleikum náttkjólum

Þursaflokkurinn - Gæti eins verið

Er eitthvað að ? - Jóhann R. Kristjánsson

Bætti við síðustu plötunni og mæli með því við lesendur mína að þeir geri slíkt hið sama.

Jóhann Kristjánsson kemur, að ég held frá Egilstöðum, en var á vertíð í Vestmannaeyjum eitt sinn. Vertíðarhýruna tók hann og setti í hið stórkostlega meistaraverk "Er eitthvað að?".  Á skífu þessari má heyra 4 lög, annars vegar 2 á íslensku hliðinni og hins vegar 2 á erlendu hliðinni. Sagan segir að "stuttur"dómur um plötuna hafi birst í einhverju blaðinu og hafi hann einungis verið ein setning " Já, það er eitthvað að". Ber það tíðarandanum vitni og hroki blaðamanns er mikill. Ekki er reynt að leggja dóm á frumlega útsetningar, skemmtilega texta, létt og frambærilegt spil á hljóðfæri svo maður tali nú ekki um Milletúlpurnar sem virðist hafa verið hljómsveitarklæðnaður á Egilstöðum um tíma.

Í Milletúlpu, með uppbrettar ermar....

En hvað um það. Sagan hefur þó ljáð Jóhannesi uppreisn æru þar sem plata hefur nú orðið ákveðinn gullsess í íslensku tónlistarlífi og vitað er að stórum hópi íslendinga sem er og mun ávallt telja sig til dyggra stuðningsmanna. Einnig er vert að segja frá því að Dr. Gunni (Rokksaga Íslands) og Jens Guðmunds(Poppbókin(Þessi gula sem til er í öllum stéttarfélagssumarbústöðum)) gefa þessari plötu fullt hús stiga.

Fyrir ykkur hin sem hafið ekki heyrt þessa snilld skveraði ég skífunni á tónlistarspilarann hérna hægra megin á síðunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég smellti inn..

todmobile- todmobile

Sykurmolarnir life is to good

hinn íslenski þursaflokkur- þursabit

Bubbi Isbjarnablús

ekki endilega í þessari röð.

Óskar Þorkelsson, 6.11.2007 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Þórðarson
Ólafur Þórðarson
Hugleiðingar miðaldra manns með vaxandi áhyggjur af líkamsþyngd sinni.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband