15.2.2007 | 23:39
Af raunum heimasætunnar....
Þurfti að bregða mér á læknavaktina í nú í kvöld þar sem unglingnum á heimilinu, sem hefur legið rúmföst á aðra viku, hafði slegið niður. Var kominn með hátt í 39 stiga hita, eyrnaverk og hor á báðar nasir. Reyndar hóf hún veikindatörnina á ælupest sem rann af henni um helgina en þá tók við hitaslæðingur og hálsbólga. Og núna er hún trúlegast kominn með RS vírus samkvæmt doktornum á Læknavaktinni. Sá sagði okkur af því að einar fjórar umgangspestir hrjái nú landann. Nýjustu fréttir úr skóla unglingsins eru þær að 65 nemendur af 300+ hafi mætt í tíma í gær.
"Ég þoli þetta ekki" hvæsti hún í átt að foreldrum sínum eins og við værum ábyrg fyrir því að hafa smitað hana. "... og svo er ég orðinn húkt á "My Sweet Fat Valentina". Þetta er náttúrulega bara sorglegt."
Annað var það ekki......
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Tenglar
Vandalausir
Þeir sem ég les reglulega
Vandamenn
Ég og mínir
- Prinsupessan Prinsupessan
- Mussan Hugleiðingar leynimussu
- Sveimhugi Stopular hugleiðingar miðaldra manns
- Frussan Frussungar hugleiða
- Mákonan Hugleiðingar miðaldra konu í Danmörku
- Skottan Hugleiðingar miðaldara konu í Danmörku
- Gamla bloggið
Athugasemdir
Er búin að fatta þetta vonlausa kommentakerfi, loksins, eftir að mörg gullkornin hafi fari til spillis á þessari síðu. Alveg hræðilega sorglegt fyrir handhafa Laddaverðlaunanna.
Óska heimasætunni góðs bata.
Skotta (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 12:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.